Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Islandsbanki hf.: Afkoma fyrri árshelmings 2015 birt þann 25. ágúst

Íslandsbanki mun birta afkomu fyrri árshelmings 2015 fyrir opnun markaða þriðjudaginn 25. ágúst 2015.


Íslandsbanki mun birta afkomu fyrri árshelmings 2015 fyrir opnun markaða þriðjudaginn 25. ágúst 2015.

Síðar þann dag , þriðjudaginn 25. ágúst kl. 12.30, munu Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, og Jón Guðni Ómarsson, fjármálastjóri, kynna afkomu bankans á opnum fjárfestafundi og svara fyrirspurnum. Fundurinn fer fram á íslensku og er haldinn í höfuðstöðvum bankans að Kirkjusandi. Boðið verður upp á veitingar.

Skrá mig á fjárfestafund á Kirkjusandi.

Einnig er markaðsaðilum boðið upp á símafund kl. 14.00 á ensku. Farið verður yfir helstu atriði í íslenskum efnahagsmálum og afkomu bankans. Vinsamlegast skráið ykkur á símafundinn með að senda póst á ir@islandsbanki.is. Fundargögn og aðgangsorð vegna símafundar verða send út til skráðra aðila 2 tímum fyrir fundinn.

Öll gögn má nálgast á vef fjárfestatengsla,www.islandsbanki.is/fjarfestatengsl

Upplýsingar um fjárhagsdagatal bankans og þögul tímabil má finna hér: http://www.islandsbanki.is/um-islandsbanka/fjarfestatengsl/fjarhagsdagatal/