Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til sex og tólf mánaða. Í heild bárust tilboð upp á 2.960 m.kr. og var tilboðum tekið fyrir 1.040 m.kr.
Seldir voru víxlar til 6 mánaða að nafnverði 820 m.kr. á 4,56% flötum vöxtum. Heildartilboð voru 2.140 m.kr. á bilinu 4,50% - 4,70%.
Seldir voru víxlar til 12 mánaða að nafnverði 220 m.kr. á 4,69% flötum vöxtum. Heildartilboð voru 820 m.kr. á bilinu 4,60% - 4,95%.
Stefnt er á að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Iceland 12. september.