Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Íslandsbanki hf.: Niðurstaða víxlaútboðs

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til sex og tólf mánaða


Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til sex og tólf mánaða. Í heild bárust tilboð upp á 4.490 m.kr. og var tilboðum tekið fyrir 1.100 m.kr.

Seldir voru víxlar til 6 mánaða að nafnverði 1.100 m.kr. á 4,32% flötum vöxtum. Heildartilboð voru 3.870 m.kr. á bilinu 4,25% - 4,40%

Í 12 mánaða víxilinn bárust tilboð að nafnverði 620 m.kr. á bilinu 4,39%-4,65%. Öll tilboð voru afþökkuð.