Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Íslandsbanki hf.: Niðurstaða víxlaútboðs

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til sex og tólf mánaða. Í heild bárust tilboð upp á 3.760 m.kr. og var tilboðum tekið fyrir 2.640 m.kr.


Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til sex og tólf mánaða. Í heild bárust tilboð upp á 3.760 m.kr. og var tilboðum tekið fyrir 2.640 m.kr. Seldir voru víxlar til 6 mánaða að nafnverði 2.640 m.kr. á 4,30% flötum vöxtum. Heildartilboð voru 3.440 m.kr. á bilinu 4,29% - 4,40%. Í 12 mánaða víxilinn bárust tilboð að nafnverði 320 m.kr. á bilinu 4,39%-4,65%. Öll tilboð voru afþökkuð.