Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til sex mánaða.
Seldir voru víxlar til 6 mánaða að nafnverði 1.240 m.kr. á 4,85% flötum vöxtum. Heildartilboð voru 3.120 m.kr. á bilinu 4,80% - 4.90%.
Stefnt er að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Iceland 15. janúar.
Nánari upplýsingar veita:
Fjárfestatengsl - Gunnar S. Magnússon, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4665.