Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Íslandsbanki hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum. Heildareftirspurn í útboðinu var 3.740 m.kr.


Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum.

Heildareftirspurn í útboðinu var 3.740 m.kr.

Heildartilboð í verðtryggða flokkinn ISLA CBI 24 voru 2.220 m.kr. á bilinu 2,73% - 2,78%. Öll tilboð voru afþökkuð að þessu sinni. 

Heildartilboð í verðtryggða flokkinn ISLA CBI 30 voru 1.520 m.kr. á bilinu 2,65% - 2,72%. Öll tilboð voru afþökkuð að þessu sinni. 

Það sem af er ári 2017 hefur Íslandsbanki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 37.880 m.kr. Heildarfjárhæð útistandandi sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka að afloknu útboði verður að nafnverði 102.580 m.kr