Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Íslandsbanki hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum.


Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum.
Heildareftirspurn í útboðinu var 2.800 m.kr.

Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISLA CBI 24 voru samtals 1.680 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,64%. Heildartilboð voru 1.680 m.kr. á bilinu 2,57% - 2,64%. Heildarstærð flokksins verður 17.900 m.kr. eftir útgáfuna.

Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISLA CBI 30 voru samtals 920 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,50%. Heildartilboð voru 1.120 m.kr. á bilinu 2,43% - 2,51%. Heildarstærð flokksins verður 14.980 m.kr. eftir útgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 28. nóvember næstkomandi.

Það sem af er ári 2017 hefur Íslandsbanki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 40.480 m.kr. Heildarfjárhæð útistandandi sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka að afloknu útboði verður að nafnverði 105.180 m.kr.