Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Íslandsbanki hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Heildareftirspurn í útboðinu var 5.200 m.kr.


Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISLA CBI 24 voru samtals 2.220 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,52%. Heildartilboð voru 2.620 m.kr. á bilinu 2,45% - 2,54%. Heildarstærð flokksins verður 21.400 m.kr. eftir útgáfuna.

Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISLA CBI 30 voru samtals 2.180 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,56%. Heildartilboð voru 2.580 m.kr. á bilinu 2,49% - 2,58%. Heildarstærð flokksins verður 18.960 m.kr. eftir útgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 28. febrúar næstkomandi.

Heildarfjárhæð útistandandi sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka að afloknu útboði verður að nafnverði 112.660 m.kr.