Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Islandsbanki hf. : Íslandsbanki lýkur víxlaútboði

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til 4, 5 og 6 mánaða.


Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til 4, 5 og 6 mánaða. Tilboðum var tekið fyrir 2,52 ma. kr. en heildareftirspurn í útboðinu var 3,76 ma. kr.

Seldir voru víxlar í 4 mánaða flokkinn ISLA 16 0616 að nafnvirði 1.420 m.kr. á 6,45% flötum vöxtum (verð 97,8095). Í 5 mánaða flokkinn ISLA 16 0721 seldust að nafnvirði 320 m.kr. á 6,49% flötum vöxtum (verð 97,1964) og í 6 mánaða flokkinn ISLA 16 0815 seldust að nafnvirði 780 m.kr. á 6,50% flötum vöxtum (verð 96,7677).

Fyrir útboðið voru útistandandi víxlar Íslandsbanka að fjárhæð 11,6 ma. kr. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 12. febrúar næstkomandi en þá eru 1,5 ma. kr. á gjalddaga í ISLA 16 0212.