Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Islandsbanki hf.: Íslandsbanki lýkur víxlaútboði

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til sex og tólf mánaða.


Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til sex og tólf mánaða. Í heild bárust tilboð upp á 4.240 m.kr. og var tilboðum tekið fyrir 940 m.kr.

Seldir voru víxlar til 6 mánaða að nafnverði 680 m.kr. á 5,24% flötum vöxtum. Heildartilboð voru 2.840 m.kr. á bilinu 5,19% - 5,50%.

Seldir voru víxlar til 12 mánaða að nafnverði 260 m.kr. á 5,49% flötum vöxtum. Heildartilboð voru 1.400 m.kr. á bilinu 5,48% - 5,65%.

Stefnt er á að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Iceland 10. febrúar.