Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Íslandsbanki hf. : Íslandsbanki lýkur víxlaútboði

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til 5 og 6 mánaða.


Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til 5 og 6 mánaða. Hver flokkur getur að hámarki orðið 1,5 ma. kr. að nafnvirði. Tilboðum var tekið fyrir 560 m. kr. Seldir voru víxlar í flokki ISLA 15 1015 að nafnvirði 440 m. kr. á kröfunni 5,25% (verð 97,7059) og í flokki ISLA 15 1106 að nafnvirði 120 m. kr. á kröfunni 5,25% (verð 97,4006).

Fyrir útboðið voru útistandandi víxlar Íslandsbanka að fjárhæð 2,94 ma. kr. Heildareftirspurn í útboðinu var 680 m. kr. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 7. maí næstkomandi, með auðkennunum ISLA 15 1015 og ISLA 15 1106.