Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Islandsbanki hf. : Íslandsbanki lýkur víxlaútboði

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til 3, 5 og 6 mánaða.


Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til 3, 5 og 6 mánaða. Hver flokkur getur að hámarki orðið 1,5 ma. kr. að nafnvirði. Tilboðum var tekið fyrir 360 m. kr. Seldir voru víxlar í flokki ISLA 15 1106 að nafnvirði 180 m. kr. á 6,05% flötum vöxtum (verð 98,5916) og í flokki ISLA 16 0212 að nafnvirði 180 m. kr. á 6,25% flötum vöxtum (verð 96,9207).


Fyrir útboðið voru útistandandi víxlar Íslandsbanka að fjárhæð 3,0 ma. kr. Heildareftirspurn í útboðinu var 980 m. kr. kr. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 13. ágúst næstkomandi, með auðkennunum ISLA 15 1106 og ISLA 16 0212.