Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til þriggja og sex mánaða. Í heild bárust tilboð upp á 7.900 m.kr. og var tilboðum tekið fyrir 1.100 m.kr.
Seldir voru víxlar til 3 mánaða að nafnverði 540 m.kr. á 5,75% flötum vöxtum.
Seldir voru víxlar til 6 mánaða að nafnverði 560 m.kr. á 5,80% flötum vöxtum.
Stefnt er á að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Iceland í næstu viku.