Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Islandsbanki hf. : Íslandsbanki lýkur víxlaútboði

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til 5 og 6 mánaða. Tilboðum var tekið fyrir 4,72 ma. kr. Seldir voru víxlar í flokki ISLA 16 0321 að nafnvirði 1,0 ma. kr. á 6,34% flötum vöxtum (verð 97,2928) og í flokki ISLA 16 0415 að nafnvirði 3,72 ma. kr. á 6,50% flötum vöxtum (verð 96,8015). Flokkur ISLA 16 0321 getur að hámarki orðið 1,5 ma. kr. að nafnvirði en flokkur ISLA 16 0415 getur orðið 5 ma. kr. að stærð.

Fyrir útboðið voru útistandandi víxlar Íslandsbanka að fjárhæð 3,4 ma. kr. Heildareftirspurn í útboðinu var 6,98 ma. kr. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 15. október næstkomandi, með auðkennunum ISLA 16 0321 og ISLA 16 0415.