Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Íslandsbanki fær viðurkenningu sem fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum

Íslandsbanki hefur nú hlotið viðurkenningu sem fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum sjötta árið í röð. Viðurkenninguna veitir Rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti og fór afhendingin fram á ráðstefnu á vegum stofnunarinnar þann 11. apríl.


Verkefnið fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum felur í sér að fyrirtækjum gefst tækifæri til að undirgangast formlegt mat á starfsháttum stjórnar og stjórnenda fyrirtækisins og byggir matsferlið í meginatriðum á leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja sem Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq á Íslandi gefa út.

Stjórn Íslandsbanka hefur það að markmiði að vera stöðugt að þróa og styrkja góða stjórnarhætti innan bankans og fylgja alþjóðlega viðurkenndum viðmiðum um bestu framkvæmd á sviði stjórnarhátta. Árlega gerir Íslandsbanki úttekt á því hvort stjórnarhættir bankans samræmist viðurkenndum leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja og birtir stjórnarháttayfirlýsingu í viðauka við ársreikning og á heimasíðu bankans. Nálgast má frekari upplýsingar um stjórnarhætti Íslandsbanka á vefsíðu bankans.