Íslandsbanki býður fyrirtækjum nú upp á færsluhirðingu og þar með heildstæða lausn fyrir móttöku greiðslna, bæði í verslunum og á netinu. Með þessari nýju nýju þjónustu geta fyrirtæki sameinað greiðslumiðlun, bankaviðskipti og uppgjör á einum stað og einfaldað þannig daglegan rekstur.
Færsluhirðing Íslandsbanka er ætluð fyrirtækjum af öllum stærðum og styður við fjölbreytta greiðslumáta, þar á meðal helstu greiðslukort, Apple Pay og Google Pay, bæði í posa og í vefverslunum. Markmiðið er að bæta greiðsluflæði, auka yfirsýn og mæta auknum kröfum um öruggar en jafnframt hraðar greiðslur.
Með færsluhirðingu Íslandsbanka fá fyrirtæki daglegt uppgjör, í íslenskum krónum og fleiri myntum eftir þörfum, auk betri yfirsýnar yfir greiðslur og færslur. Lausnin tengist helstu afgreiðslu- og bókhaldskerfum, sem dregur úr handavinnu og einfaldar frágang og uppgjör í rekstri fyrirtækja.
Traust þjónusta í samstarfi við reynslumikla aðila
Íslandsbanki hefur byggt færsluhirðinguna upp í samstarfi við sterka og reynslumikla aðila á sviði greiðslumiðlunar. Samstarfsaðilar eru Nets, sem þjónustar yfir þrjár milljónir seljenda og er stærsti færsluhirðir Skandinavíu og Verifone á Íslandi, sem hefur áralanga reynslu af posa- og veflausnum og veitir fyrirtækjum öfluga þjónustu.
Með því að bjóða færsluhirðingu styrkir Íslandsbanki þjónustuframboð sitt til fyrirtækja enn frekar og mætir óskum viðskiptavina um að hafa lykilþjónustu á einum stað.
Nánari upplýsingar um færsluhirðingu Íslandsbanka má finna á vef bankans eða hjá ráðgjöfum í fyrirtækjaþjónustu Íslandsbanka.

