Þann 6. september mætast Keflavík og FHL kl. 14:00 á HS Orku vellinum í Keflavík.
Síðar um daginn, kl. 16:30, mæta Grindavík/Njarðvík og Valur á JBÓ vellinum í Njarðvík.
Það verður sannkölluð hátíðarstemning á báðum völlum og fyrir leik verður boðið upp á andlitsmálningu, bæði í Keflavík og Njarðvík. Tilvalið tækifæri fyrir alla fjölskylduna til að koma saman, skemmta sér og sýna liðunum stuðning.
Gerum okkur glaðan dag á Ljósanótt, fjölmennum á völlinn og hvetjum stelpurnar áfram!
