Íslandsbanki býður á ný verðtryggð húsnæðislán á föstum vöxtum

Íslandsbanki hefur ákveðið að hefja á ný veitingu verðtryggðra húsnæðislána á föstum vöxtum. Bankinn hafði áður tilkynnt um tímabundnar breytingar á lánaframboði í kjölfar dóms Hæstaréttar sem fólu meðal annars í sér tímabundið hlé á slíkum lánveitingum.  


Íslandsbanki tilkynnti um tímabundnar breytingar á vöruframboði bankans þann 30. október síðastliðinn, þar með talið um tímabundið hlé á veitingu verðtryggðra húsnæðislána til einstaklinga með föstum vöxtum. Mikil vinna hefur átt sér stað innan bankans við að móta lánavörur sem taka mið af niðurstöðum dóms Hæstaréttar. 

Íslandsbanki býður einstaklingum nú á ný verðtryggð húsnæðislán á föstum vöxtum til fimm ára í senn. Seðlabanki Íslands hefur hafið birtingu fastra lánstímavaxta og kynnir bankinn nú breytingu á verðtryggðum húsnæðislánum með fasta vexti til fimm ára þar sem vaxtaviðmið Seðlabankans hefur verið tekið með inn í mótun á uppfærðu vöruframboði slíkra lána, að því marki sem hér kemur fram.

Verðtryggð húsnæðislán til einstaklinga á föstum vöxtum:

  • Íslandsbanki býður verðtryggð lán til einstaklinga með fasta vexti til fimm ára, bæði fyrir fyrstu kaupendur og aðra.
  • Eftir að fastvaxtatímabili lýkur eftir fimm ár ákvarðast vextir til næstu fimm ára af því sem lægra er af: 
    (i) þeim vaxtakjörum sem Íslandsbanki býður á nýjum verðtryggðum húsnæðislánum á þeim tíma, með sama binditíma vaxta og veðsetningarhlutfalli, eða 
    (ii) föstum lánstímavöxtum Seðlabanka Íslands (par-vöxtum) fyrir verðtryggð fimm ára lán, að viðbættu vaxtaálagi. Fastir lánstímavextir og álag skulu þó að samanlögðu ekki vera lægra en 3,50% fyrir grunnlán. Ef Seðlabanki Íslands hættir að reikna og birta framangreint vaxtaviðmið miðar liður (ii) við tilgreint prósentuhlutfall (5,25% fyrir grunnlán) í stað framangreinds vaxtaviðmiðs að viðbættu álagi. 

Við lok fastvaxtatímabils býðst lántaka jafnframt að endurfjármagna lánið eða greiða það upp án uppgreiðslugjalda, áður en nýtt fastvaxtatímabil hefst.

Íslandsbanki stígur með þessum breytingum skref í þá átt að létta á þeirri óvissu um vöruframboð á húsnæðislánamarkaði sem verið hefur frá dómi Hæstaréttar. Opnað verði fyrir nýjar umsóknir á morgun, 10. nóvember, og mun bankinn leitast við að vinna hratt og örugglega úr þeim umsóknum sem þegar hafa borist.

Nánari upplýsingar um lánaframboð Íslandsbanka er aðgengilegt hér.

Þá er unnt að panta tíma hjá ráðgjafa til að fá upplýsingar um þá kosti sem í boði eru.