Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Íslandsbanki breytir vöxtum 

Húsnæðissparnaður mun bera 6,95% vexti og reikningurinn Ávöxtun 6% vexti.


Vextir bankans taka breytingum 20.febrúar í kjölfarið af stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans. 

Vextir Ergo breytast 24. febrúar. 

Rétt er að vekja athygli á því að í skilmálum óverðtryggðra húsnæðislána með breytilegum vöxtum sem veitt voru á tilgreindu tímabili á árunum 2012 til 2021, eru ákvæði sem heimila viðskiptavinum að sækja um vaxtagreiðsluþak. 

Vaxtabreytingarnar eru eftirfarandi:

  • Vextir á óverðtryggðum innlánsreikningum hækka um 0,50 prósentustig. 
  • Breytilegir vextir óverðtryggðra húsnæðislána hækka um 0,50 prósentustig. 
  • Breytilegir óverðtryggðir kjörvextir hækka um 0,50 prósentustig.
  • Breytilegir óverðtryggðir kjörvextir Ergo og vextir bílalána og bílasamninga hækka um 0,50 prósentustig.
  • Yfirdráttarvextir einstaklinga og fyrirtækja hækka um 0,50 prósentustig.

 Breytingar á lánum sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka þó gildi í samræmi við skilmála þeirra og tilkynningar þar að lútandi.

 Breytingar á óverðtryggðum breytilegum vöxtum húsnæðislána taka gildi þann 1. mars næstkomandi.