Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Íslandsbanki breytir vöxtum

Íslandsbanki mun þann 9. júní breyta vöxtum í kjölfar vaxtaákvörðunar Seðlabanka Íslands þann 24. maí síðastliðinn þar sem stýrivextir voru hækkaðir um 1,25 prósentustig. 


Rétt er að vekja athygli á því að í skilmálum óverðtryggðra húsnæðislána með breytilegum vöxtum sem veitt voru á tilgreindu tímabili á árunum 2012 til 2021, eru ákvæði sem heimila viðskiptavinum að sækja um vaxtagreiðsluþak. 

Vaxtabreytingarnar eru eftirfarandi:

  • Vextir á óverðtryggðum innlánsreikningum hækka um 1,25 prósentustig. 
  • Vextir á almennum veltureikningum hækka um 0,50 prósentustig.
  • Breytilegir vextir óverðtryggðra húsnæðislána hækka um 1,25 prósentustig. 
  • Breytilegir óverðtryggðir kjörvextir hækka um 1,25 prósentustig.
  • Breytilegir óverðtryggðir kjörvextir Ergo og vextir bílalána og bílasamninga hækka um 1,25 prósentustig.
  • Yfirdráttarvextir einstaklinga og fyrirtækja hækka um 1,25  prósentustig.

Breytingar á lánum sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka þó gildi í samræmi við skilmála þeirra og tilkynningar þar að lútandi.