Íslandsbanki breytir vöxtum

Íslandsbanki hækkar vexti inn- og útlána og tekur ný vaxtatafla gildi þann 3. september næstkomandi.


Húsnæðislán 

  • Húsnæðislán tengd stýrivöxtum hafa nú þegar tekið breytingum í takt við hækkun stýrivaxta
  • Breytilegir vextir á óverðtryggðum húsnæðislánum hækka um 0,25 prósentustig (ný lán ekki veitt) 
  • Breytilegir vextir fyrstu kaupalána hækka um 0,25 prósentustig (ný lán ekki veitt) 

Útlán 

  • Óverðtryggðir kjörvextir hækka um 0,25 prósentustig  
  • Óverðtryggðir kjörvextir Ergo, vextir bílalána og bílasamninga hækka um 0,25 prósentustig 
  • Vextir á yfirdráttarlánum hækka um 0,25 prósentustig 
  • Vextir á greiðslukortum hækka um 0,25 prósentustig  

Innlán 

  • Vextir á óverðtryggðum sparnaðarreikningum hækka um allt að 0,25 prósentustig 

Breytingarnar sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við skilmála lánanna og tilkynningar um vaxtabreytingar. Það sama gildir um breytingar á vöxtum innlána sem falla undir lög um greiðsluþjónustu.