Íslandsbanki breytir vöxtum

Íslandsbanki hækkar vexti inn- og útlána og tekur ný vaxtatafla gildi þann 27. maí næstkomandi. Breyting á föstum vöxtum óverðtryggðra húsnæðislána tók gildi 20. maí.


Húsnæðislán

  • Breytilegir vextir á óverðtryggðum húsnæðislánum hækka um 0,25 prósentustig (ný lán ekki veitt)
  • Breytilegir vextir fyrstu kaupalána hækka um 0,25 prósentustig
  • Óverðtryggð húsnæðislán með föstum vöxtum til 3ja ára hækka um 0,40 prósentustig
  • Óverðtryggð húsnæðislán með föstum vöxtum til 5 ára hækka um 0,50 prósentustig

Útlán

  • Óverðtryggðir kjörvextir hækka um 0,25 prósentustig 
  • Óverðtryggðir kjörvextir Ergo, vextir bílalána og bílasamninga hækka um 0,25 prósentustig
  • Vextir á yfirdráttarlánum hækka um 0,25 prósentustig
  • Vextir á greiðslukortum hækka um 0,25 prósentustig  

Innlán

  • Vextir á óverðtryggðum sparnaðarreikningum hækka um allt að 0,25 prósentustig

Breytingarnar sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við skilmála lánanna og tilkynningar um vaxtabreytingar. Það sama gildir um breytingar á vöxtum innlána sem falla undir lög um greiðsluþjónustu.