Peningarnir fara á sparireikninga
Nánast allur vöxturinn skrifast á óbundna sparireikninga, þ.e. reikninga þar sem hægt er að taka peningana út hvenær sem er. Þeir skýra 10,3 prósentustig af 11,7% vexti innlána, eða nærri níu af hverjum tíu krónum sem bæst hafa við. Á óbundnum reikningum liggja nú 1.139 ma.kr., meira en helmingur allra innlána heimila. Verðtryggður sparnaður hefur líka aukist í krónum talið og skýrir 1,7 prósentustig af vextinum, um þrefalt meira en um mitt síðasta ár, en þar munar nær eingöngu um séreignarsparnað. Ef séreignin er undanskilin má rekja allan vöxt innlána heimila til óbundinna reikninga.
Á móti hafa bundnir reikningar misst aðdráttarafl sitt. Framlag þeirra til vaxtarins var 3,8 prósentustig í febrúar 2025 en er nú aðeins 0,3. Veltureikningar, þ.e. hefðbundnir launareikningar, hafa á sama tíma dregist saman. Myndin er því nokkuð skýr: heimilin halda minna fé á vaxtalitlum reikningum og færa það frekar þangað sem betri vextir bjóðast.
Innlánin vaxa jafnframt hraðar en tekjur heimilanna. Ef litið er á annan ársfjórðung, þar sem bæði liggja fyrir tölur um innlán og heimilistekjur, jukust ráðstöfunartekjur heimilanna um 7,3% frá fyrra ári, á meðan innlán þeirra jukust um 11,8% á tólf mánuðum til loka júní. Sama mynd blasti við í fyrra, þegar ráðstöfunartekjur jukust um 6,1% en innlánin um 9,4% yfir árið. Hluta skýringarinnar má rekja til vaxtanna sjálfra: með um 7,5% vöxtum stækkar innstæðan nánast um sama hlutfall á ári án þess að krónu sé bætt við. Þróunin kann að endurspegla að heimilin leggi stærri hluta tekna sinna til hliðar, en einnig að fé færist úr öðrum eignum yfir á bankareikninga. Sú mynd rímar við hægan vöxt kaupmáttar á mann og einkaneyslu. Kaupmáttur á mann jókst aðeins um 0,8% á öðrum ársfjórðungi og einkaneyslan hefur vaxið hægt það sem af er ári.