Launavísitala hækkaði um 0,7% milli mánaða í september samkvæmt nýlegum tölum Hagstofunnar. Nokkuð algengt er að vísitalan hækki í september og má hækkunina fyrst og fremst rekja til aukagreiðslna, sem gjarnan aukast þegar fólk snýr aftur til vinnu eftir sumarfrí. Á sama tíma hefur hægt á árshækkun launa. Launavísitalan var 5,6% hærri en í september í fyrra og hefur árshækkunin ekki verið minni frá byrjun árs 2020.
Hægari launahækkanir í kólnandi hagkerfi
Dregið hefur úr launahækkunum samhliða auknum slaka á vinnumarkaði og hefur kaupmáttur launa nú gefið lítillega eftir. Við gerum ráð fyrir að atvinnuleysi aukist áfram á næstu mánuðum, en taki að minnka á ný þegar líður á næsta ár.
Vegna þrálátrar verðbólgu hefur kaupmáttur nú gefið eftir. Ársverðbólga mældist 5,9% í september og drógust raunlaun því saman um 0,3% á sama tíma. Hægt hefur jafnt og þétt á vexti kaupmáttar launa undanfarin misseri. Til samanburðar jókst kaupmáttur um 3,5% í september í fyrra.
Atvinnuleysi fer vaxandi
Hægari launahækkanir má meðal annars rekja til aukins slaka á vinnumarkaði. Atvinnuleysi hefur farið vaxandi undanfarin misseri og mældist skráð atvinnuleysi 4,0% í september samkvæmt Vinnumálastofnun. Stofnunin gerir jafnframt ráð fyrir að það aukist enn frekar á næstu mánuðum.
Svipaða þróun má sjá í vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar. Samkvæmt óleiðréttum niðurstöðum mældist atvinnuleysi 5,1% og hafði aukist um 1,9 prósentustig frá september í fyrra. Miklar sveiflur eru milli mánaða í atvinnuleysishlutfallinu í könnuninni en sex mánaða leitni í atvinnuleysinu, sem gefur betri mynd af undirliggjandi þróun, sýnir umtalsverða aukningu milli ára. Á þann kvarða var atvinnuleysið 5,9% í september samanborið við 4,8% á sama tíma í fyrra.
Skortur á starfsfólki heyrir sögunni til
Fleiri mælikvarðar benda til þess að tekið hafi að kólna talsvert á vinnumarkaði. Samkvæmt nýjustu könnun meðal stjórnenda stærstu fyrirtækja landsins mælist skortur á starfsfólki nú lítill í sögulegu samhengi. Einungis um 15% stjórnenda telja skort á starfsfólki í sínu fyrirtæki, samanborið við 56% þegar hlutfallið fór sem hæst árið 2022. Skorturinn er mestur í byggingastarfsemi og veitum, þar sem um 30% stjórnenda telja skort vera á starfsfólki. Í þeim geira hefur þó orðið skörp hækkun á skráðu atvinnuleysi undanfarið ár samkvæmt gögnum Vinnumálastofnunar.
Enn skýrari merki um kólnun sjást í ráðningaráformum fyrirtækja. Einungis 9% stjórnenda hyggjast fjölga starfsfólki á næstu sex mánuðum á meðan 34% gera ráð fyrir að starfsfólki fækki nokkuð eða mikið.
Sveigjanleiki vinnumarkaðarins birtist einnig í fólksflutningum til og frá landinu. Dregið hefur úr aðflutningi vinnuafls á sama tíma og atvinnuleysi meðal erlendra ríkisborgara er talsvert meira en meðal íslenskra ríkisborgara. Það bendir til þess að aðlögun vinnumarkaðarins eigi sér að hluta til stað í gegnum minni aðflutning vinnuafls og brottflutning þegar eftirspurn eftir starfsfólki minnkar.
Kjarasamningar halda.. í bili
Talsverð óvissa hefur verið um framhald kjarasamninga undanfarnar vikur eftir að forsendur þeirra brustu í september vegna meiri verðbólgu en samningarnir gerðu ráð fyrir. Sú óvissa er nú úr sögunni eftir að samkomulag náðist milli aðila vinnumarkaðarins í byrjun október um að kjarasamningar héldu.
Samkomulagið fól þó í sér breytingar á forsenduákvæði samninganna hjá hluta launþega. Nýtt ákvæði heimilar að gildistími þeirra verði styttur um allt að tvo mánuði ef ársverðbólga mælist yfir 4,3% í október 2027 eða verðbólga frá apríl til október sama ár verður yfir 3,8% á ársgrundvelli. Miðað við langtímaspá okkar verður verðbólga mjög nærri þessum viðmiðunarmörkum haustið 2027. Bresti þessar forsendur munu samningsaðilar þó einnig líta til undirliggjandi orsaka verðbólgunnar áður en ákvörðun verður tekin um framhaldið. Hjá öðrum var samningstíminn styttur um mánuð en formleg forsenduákvæði ekki sett inn.
Stjórnvöld komu einnig að samkomulaginu með aðgerðum sem ætlað er að styðja við markmið kjarasamninganna um minni verðbólgu og lægri vexti. Meðal annars verða hækkanir krónutölugjalda og gjaldskráa ríkisins, sem hafa bein áhrif á vísitölu neysluverðs, takmarkaðar við 2,5% árið 2027, að kílómetragjaldi undanskildu. Sveitarfélög eru þar að auki hvött til sambærilegs aðhalds og Samtök atvinnulífsins hvetja fyrirtæki til að halda aftur af verðhækkunum.
Þá verða fjárhæðir og skerðingarmörk barnabóta hækkuð, stutt verður við áframhaldandi uppbyggingu almenna íbúðakerfisins og sérstakar einskiptisvaxtabætur greiddar skuldsettum heimilum í byrjun árs 2028 fari verðbólga yfir tiltekin mörk haustið 2027.
Kjarasamningarnir virðast því hólpnir í bili og óvissan um launaþróun næstu missera hefur minnkað verulega. Næsti mögulegi vendipunktur verður haustið 2027 þegar nýja forsenduákvæðið kemur til skoðunar.
Atvinnuleysi nær hámarki á næsta ári
Við gerum ráð fyrir að slakinn á vinnumarkaði vari fram á næsta ár og að atvinnuleysi aukist enn frekar á næstu mánuðum. Spá okkar miðast við skráð atvinnuleysi samkvæmt Vinnumálastofnun og gerum við ráð fyrir að það fari hæst í rúmlega 5% á næsta ári, en taki síðan að minnka þegar líður á árið. Að meðaltali spáum við 4,5% atvinnuleysi á næsta ári. Íslenskur vinnumarkaður hefur reynst sveigjanlegur og samhliða auknum umsvifum í hagkerfinu gerum við ráð fyrir að atvinnuleysi minnki áfram þegar líður á spátímann.
Aukinn slaki hefur þegar dregið úr launaþrýstingi og launaskriði og gerum við ráð fyrir að launahækkanir verði hóflegri en undanfarin ár. Núgildandi kjarasamningar móta launaþróun næstu missera að miklu leyti og eftir samkomulagið í október hefur óvissa um þróunina minnkað verulega.
Þrátt fyrir þráláta verðbólgu gerum við ráð fyrir að kaupmáttur launa haldi nokkurn veginn velli á næstu misserum og taki síðan að aukast á ný þegar líður á spátímann. Hóflegri launahækkanir og aukinn slaki á vinnumarkaði ættu jafnframt að draga úr innlendum verðbólguþrýstingi og styðja við hjöðnun verðbólgunnar næstu misserin.

