Breyting á reglum Seðlabanka Íslands um millibankagreiðslukerfi leiðir til þess að gamlársdagur, 31. desember, telst ekki lengur viðskiptadagur (bankadagur).
Þetta þýðir að allar greiðslur sem framkvæmdar eru miðvikudaginn 31. desember 2025 bókast föstudaginn 2. janúar 2026 og teljast til ársins 2026. Allar greiðslur sem eiga að tilheyra árinu 2025 þarf að framkvæma eigi síðar en þriðjudaginn 30. desember 2025. Viðskiptavinir sem gefa út kröfur þurfa að gera ráðstafanir til að tryggja að kröfur sem eiga að greiðast á árinu 2025 verði stofnaðar með eindaga eigi síðar en þriðjudaginn 30. desember 2025.
Útibú og ráðgjafaver bankans verða lokuð á gamlársdag.
Nánar:
Reglur nr. 1030/2020 um millibankagreiðslukerfi Seðlabanka Íslands.
