Fleiri hendur eða meiri framleiðni?

Hagkerfið hefur stækkað um nærri þriðjung frá árinu 2015 en landsframleiðsla á mann aðeins aukist um 8,5% á sama tíma. Skýringin liggur fyrst og fremst í hraðri fólksfjölgun, styttri vinnutíma og því að störfum hefur einkum fjölgað í greinum með lægri framleiðni, fremur en í almennri framleiðnistöðnun. Framleiðni á vinnustund hefur vaxið álíka hratt eða hraðar hér en á hinum Norðurlöndunum, en hún þarf í auknum mæli að bera vöxtinn uppi á komandi árum.


Undanfarið hefur talsvert verið rætt um hvort hægur vöxtur vergrar landsframleiðslu (VLF) á mann sé til marks um að Ísland glími við framleiðnivanda. Mælikvarðarnir eru skyldir en segja ekki sömu söguna. VLF á mann mælir verðmætasköpun á hvern íbúa og stendur nær lífskjörum, en framleiðni vinnuafls mælir verðmætasköpun á hverja unna vinnustund. Munurinn ræðst af því hve stór hluti landsmanna er við störf og hve lengi hver og einn vinnur. Með því að kljúfa hagvöxtinn í þessa þætti má sjá hvort vöxturinn hefur fyrst og fremst komið frá fleiri höndum eða skýrist af meiri afköstum.

Hagkerfið stækkar en minna á mann

Samkvæmt tölum Hagstofunnar jókst verg landsframleiðsla (VLF) að raunvirði um 31% frá 2015 til 2025. Á sama tíma fjölgaði landsmönnum um 21%, starfandi um tæpan fjórðung og unnum vinnustundum um tæp 18%. VLF á mann jókst því aðeins um 8,5% á tímabilinu og var í fyrra nánast sú sama og árið 2018. Framleiðni á vinnustund jókst hins vegar um 11,5%.

Sé litið lengra aftur hefur verulega hægt á framleiðnivexti. Frá 1995 til 2007 jókst framleiðni á vinnustund um 3,5% á ári að jafnaði og bar uppi bróðurpart hagvaxtarins, en frá 2007 til 2019 um 0,8% og frá 2019 til 2025 um tæplega 0,9%. Á síðastnefnda tímabilinu var hagvöxtur 2,0% á ári en fólksfjölgun skýrði 1,8 prósentur af honum og VLF á mann óx því aðeins um 0,2% á ári. Hafa verður í huga að tímabilið fyrir fjármálakreppuna einkenndist af miklum efnahagslegum breytingum og er því trúlega ekki raunhæfur mælikvarði á sjálfbæran framleiðnivöxt til lengri tíma.

Fólksfjölgunin hefur að stærstum hluta verið knúin áfram af aðflutningi. Frá miðju ári 2015 fjölgaði landsmönnum um rúmlega 72 þúsund og voru erlendir ríkisborgarar um tveir þriðju hlutar fjölgunarinnar. Aðflutningurinn hefur gert hagkerfinu kleift að vaxa hratt, ekki síst í ferðaþjónustu og byggingarstarfsemi, en slíkur vöxtur fjölgar fyrst og fremst vinnandi höndum og leiðir ekki sjálfkrafa til aukinnar verðmætasköpunar á mann.. Þjóðartekjur á mann segja svipaða sögu og hafa nánast staðið í stað frá 2019.

Framleiðnin stenst norrænan samanburð

Samanburður við hin Norðurlöndin bendir ekki til þess að framleiðnivöxtur á Íslandi hafi verið óvenju hægur undanfarinn áratug. Það útilokar þó ekki að hér sé við að etja kerfislægan framleiðnivanda, ekki síst hvað varðar nýtingu framleiðsluþátta og tilfærslu þeirra frá afkastaminni til afkastameiri fyrirtækja. Samkvæmt Eurostat jókst framleiðni á vinnustund hér á landi um 1,1% á ári að jafnaði frá 2015 til 2025, sem er sami vöxtur og tölur Hagstofunnar sýna á sama tímabili. Meðaltalið er hærra en á tímabilunum hér að framan vegna óvenju hraðs vaxtar á árunum 2015–2019. Framleiðnivöxturinn hér er svipaður og í Danmörku (1,2%) og nokkru meiri en í Svíþjóð, Noregi og ESB í heild (0,7–0,8%) sem og Finnlandi (0,5%). Á síðasta ári var framleiðni á vinnustund hér um fimmtungi meiri en að meðaltali í ESB mælt á jafnvirðisgildi (PPS), en minni en í Danmörku og Noregi.

Myndin breytist þegar horft er á VLF á mann, sem óx hér um 0,8% á ári frá 2015. Það er sambærilegt við Noreg, Svíþjóð og Finnland en mun minna en í Danmörku og ESB. Skýringin er tvíþætt. Landsmönnum fjölgaði um 1,9% á ári, samanborið við 0,2–0,9% í samanburðarlöndunum, og vinnustundum á hvern starfandi fækkaði hraðar hér en annars staðar. Í Danmörku og ESB hækkaði hlutfall starfandi af íbúum hins vegar umtalsvert og lyfti VLF á mann.

Styttri vinnutími og breytt samsetning

Vinnustundum á hvern starfandi hefur fækkað um 17% frá 1995 samkvæmt Hagstofunni, úr rúmlega 1.730 stundum á ári í tæplega 1.440, og hefur heldur fækkunin sótt í sig veðrið að undanförnu, ekki síst vegna umsaminnar styttingar vinnuviku í kjarasamningum. Styttri vinnutími dregur að öðru óbreyttu úr VLF á mann, nema aukin framleiðni á hverja vinnustund vegi áhrifin upp að hluta eða öllu leyti. Styttri vinnutími endurspeglar að sama skapi aukinn frítíma, lífsgæði sem landsframleiðslan nær ekki utan um. Þarna sést vel hvers vegna VLF á mann er ein og sér ófullkominn mælikvarði á lífskjör.

Samsetning atvinnulífsins skiptir einnig máli. Frá 2008 jókst framleiðni á vinnustund um 20% í heild en mest í upplýsingum og fjarskiptum, þar sem hún meira en tvöfaldaðist. Vinnustundum fjölgaði hins vegar mest í opinberri þjónustu, gistingu og veitingum og sérhæfðri þjónustu þar sem framleiðnivöxtur var að jafnaði mun hægari. Vinnsluvirði á hverja vinnustund var 8,2 þús. kr. í gistingu og veitingum í fyrra og 9,6 þús. kr. í opinberri þjónustu, samanborið við 12,2 þús. kr. í hagkerfinu í heild án fasteignaviðskipta. Gróflega áætlað hefur þessi tilfærsla vinnuafls milli greina dregið árlegan framleiðnivöxt niður um 0,2–0,4 prósentur frá 2008, þótt hafa beri í huga að framleiðni í opinberri þjónustu er tormæld og að miklu leyti metin út frá aðföngum.

Þetta er í takti við nýlega greiningu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS). Sjóðurinn telur þó að meginskýringin liggi innan einstakra greina, þar sem vinnuafl og fjármagn leiti ekki nægilega til afkastamestu fyrirtækjanna. AGS bendir einnig á að framleiðni á vinnustund hér sé um 10% undir meðaltali hinna Norðurlandanna, en þar er um stig framleiðninnar að ræða en ekki vöxt hennar.

Framleiðnin þarf að taka við keflinu

Að okkar mati skýrist veikur vöxtur VLF á mann undanfarin ár fyrst og fremst af því að hagvöxturinn hefur byggst á fleiri höndum samhliða styttri vinnutíma fremur en að framleiðnin hafi brugðist. Ísland stendur sig nokkuð vel í norrænum samanburði hvað framleiðnivöxt varðar, þótt hann sé mun hægari en fyrir fjármálakreppu líkt og víðast hvar á Vesturlöndum.

Þar með er ekki sagt að hægur framleiðnivöxtur sé ekki áhyggjuefni. Vöxtur sem byggir á fólksfjölgun reynir á innviði, húsnæðismarkað og opinbera þjónustu og bætir lífskjör hvers og eins lítið. Næsta kastið verður fólksfjölgun trúlega mun hægari en verið hefur samhliða kólnun á vinnumarkaði og breyttum takti í fólksflutningum til og frá landinu. Landsmönnum fjölgaði um 1,2% frá miðju síðasta ári fram á mitt þetta ár, talsvert hægar en að jafnaði frá 2019, og samkvæmt könnun Gallup í september hyggjast mun fleiri fyrirtæki fækka starfsfólki en fjölga því. Í þjóðhagsspá okkar frá september gerum við ráð fyrir 1,2% hagvexti í ár, 1,8% á næsta ári og 2,3% árið 2028. VLF á mann mun því lítið breytast í ár en glæðast nokkuð á næstu tveimur árum verði fólksfjölgun áfram hófleg.

Nýjustu tölur gefa þó fyrirheit um að framleiðnin sé að sækja í sig veðrið. Í fyrra jókst framleiðni á vinnustund um 2,7% og síðustu fjóra ársfjórðunga um nærri 3% milli ára samkvæmt útreikningum okkar. Seðlabankinn spáir 2,7% framleiðnivexti í ár en að verulega hægi á honum á næsta ári þegar vinnustundum fjölgar á ný. Vöxturinn skýrist þó ekki síst af styttri vinnutíma og skilar sér því minna í VLF á mann. Hugverkaiðnaður, gagnaver og landeldi eru vaxandi greinar sem trúlega skila háu vinnsluvirði á hverja vinnustund og gervigreind gæti aukið framleiðni almennt umtalsvert þegar fram í sækir. Með hægari fólksfjölgun þarf framleiðnin í auknum mæli að bera hagvöxtinn uppi. Takist það ætti VLF á mann að taka við sér á ný og lífskjör á Íslandi að halda áfram að batna jafnt og þétt.

Höfundur


Jón Bjarki Bentsson

Aðalhagfræðingur


Hafa samband