Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Endurvottun Dalsins í Íslandsbanka

Í dag hlýtur Dalurinn, mötuneyti Íslandsbanka, endurvottun Svansins fyrir ný viðmið fyrir veitingarekstur.


Mötuneytið fékk Svansvottun fyrst í byrjun árs 2021 og sýndi Íslandsbanki þá sem og nú gott fordæmi og samfélagslega ábyrgð samhliða því að framfylgja sjálfbærnistefnu bankans.

Vottunarferlið einkenndist af metnaði, elju og áræðni sem sannar sig í þeim aðgerðum sem starfsfólk Dalsins réðst í, m.a:

  • Þjálfun starfsfólks í vatns- og orkusparandi verklagi.
  • Vandleg flokkun alls úrgangs sem fellur til.
  • Mælingar og aðgerðir sem koma í veg fyrir matarsóun, en mötuneytið mælir daglega matarsóun viðskiptavina sinna.
  • Aukning í innkaupum á lífrænt vottuðum vörum.

Einnig er vert að nefna að til að lágmarka kolefnisspor mötuneytisins er lögð áhersla á að hafa grænmetisrétt í boði á hverjum degi og er kjötlaus-dagur einu sinni í viku.

Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna. Til að hljóta Svansvottun þurfa fyrirtæki að uppfylla strangar umhverfis- og gæðakröfur sem taka til alls lífsferils vöru eða þjónustu. Dalur er fyrsti leyfishafinn innan viðmiðaflokksins til að klára endurvottun Svansins samkvæmt þessum nýuppfærðu viðmiðum. Það er mjög ánægjulegt að sjá innanhús mötuneyti innleiða Svaninn þar sem vottunin felur ekki í sér samkeppnisforskot fyrir þessa aðila heldur er verkefnið dregið áfram af umhverfishugsjón stjórnenda mötuneytisins með góðum stuðning yfirmanna og stjórnar.

Á myndinni eru:

Ríkharður Gústavsson, deildarstjóri Dalsins

Elva Rakel Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Svansins