Eik fasteignafélag lýkur kaupum á Festingu hf.

Blue Ocean B.V. og SMT Partners B.V. hafa formlega gengið frá sölu á öllu hlutafé Festingar hf. til Eik fasteignafélags hf.


Eignasafn Festingar samanstendur af 12 fasteignum, samtals um 43 þúsund fermetrum af atvinnuhúsnæði, sem hýsa starfsemi Samskipa hf. hér á landi. Heildarvirði Festingar í kaupunum (e. Enterprise Value) er 15.070 milljónir króna.

Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka var ráðgjafi seljenda í viðskiptunum og lögfræðiráðgjöf var í höndum LOGOS.

Ráðgjafar Eikar í viðskiptunum voru Arctica Finance hf. og Venture Legal ehf.

Við erum ánægð með að hafa gengið frá kaupum á Festingu og hlökkum til samstarfsins um ókomna framtíð. Eins og fram hefur komið þá tilheyra fasteignir Festingar mikilvægum innviðum og Samskip er og verður nauðsynlegur hluti af íslensku samfélagi. Eik fasteignafélag vill fjárfesta með atvinnulífinu og við komumst varla nær kjarna þess en með þessum viðskiptum.

Hreiðar Már Hermannsson
Forstjóri Eikar fasteignafélags

Við erum stolt af því að hafa gengið frá samningi um sölu á Festingu og þeim fasteignum sem félagið hefur byggt upp á síðustu tuttugu árum. Eignirnar, sem að stærstum hluta styðja við starfsemi Samskipa, eru bæði vandaðar og vel staðsettar, og teljast til fremstu innviða fyrir sjó- og landflutninga á Íslandi. Að lokinni sölu munu hluthafar Festingar beina kröftum sínum að þróun nýrrar hafnaraðstöðu í Rotterdam ásamt því að styðja við áframhaldandi uppbyggingu leiðakerfis Samskipa í Evrópu. Það gleður okkur að Eik – öflugt, framsækið og faglegt fasteignafélag – muni taka við Festingu. Við væntum góðs samstarfs við Eik til framtíðar.

Ólafur Ólafsson
Stjórnarformaður Festingar og aðaleigandi