Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Breytingar á vöxtum Íslandsbanka

Íslandsbanki breytir vöxtum í kjölfar vaxtaákvörðunar Seðlabankans.


Íslandsbanki mun þann 1. desember breyta vöxtum í kjölfar vaxtaákvörðunar Seðlabanka Íslands þann 17. nóvember þar sem stýrivextir voru hækkaðir um 0,50 prósentustig. Vaxtabreyting hjá Ergo tekur gildi 3. desember.

Vaxtabreytingarnar eru eftirfarandi:

  • Fastir vextir verðtryggðra húsnæðislána með vaxtaendurskoðun lækka um 0,45 prósentustig
  • Fastir vextir óverðtryggðra húsnæðislána til 3 ára hækka um 0,20 prósentustig en fastir vextir óverðtryggðra húsnæðislána til 5 ára haldast óbreyttir
  • Breytilegir vextir óverðtryggðra húsnæðislána hækka um 0,20 prósentustig
  • Breytilegir óverðtryggðir kjörvextir hækka um 0,35 prósentustig
  • Yfirdráttarvextir einstaklinga og fyrirtækja hækka um 0,50 prósentustig
  • Breytilegir óverðtryggðir vextir Ergo hækka um 0,35 prósentustig
  • Breytilegir óverðtryggðir innlánsvextir hækka um allt að 0,50 prósentustig eða haldast óbreyttir

Í kjölfar breytinganna verða fastir verðtryggðir húsnæðislánavextir bankans auk vextir óverðtryggðra breytilegra húsnæðislána þeir lægstu meðal íslenskra banka.  

Breytingar á lánum sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka þó gildi í samræmi við skilmála þeirra og tilkynningar þar að lútandi.