Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Breytingar á vöxtum Íslandsbanka

Íslandsbanki breytir vöxtum í kjölfar vaxtaákvörðunar Seðlabankans.


Íslandsbanki mun þann 22. febrúar breyta vöxtum í kjölfar vaxtaákvörðunar Seðlabanka Íslands þann 9. febrúar þar sem stýrivextir voru hækkaðir um 0,75 prósentustig. Vaxtabreyting hjá Ergo tekur gildi 25. febrúar.

Vaxtabreytingarnar eru eftirfarandi:

  • Vextir á óverðtryggðum innlánareikningum hækka um allt að 0,95 prósentustig, mest hækka vextir á húsnæðissparnaðarreikningi bankans.
  • Breytilegir vextir óverðtryggðra húsnæðislána hækka um 0,50 prósentustig og verða 4,65%. Engar breytingar verða á föstum vöxtum óverðtryggðra húsnæðislána. Þá verða engar breytingar gerðar á vöxtum verðtryggðra húsnæðislána, hvorki breytilegum né föstum.
  • Breytilegir óverðtryggðir kjörvextir hækka um 0,50 prósentustig.
  • Breytilegir óverðtryggðir kjörvextir Ergo og vextir bílalána og bílasamninga hækka um 0,50 prósentustig.
  • Yfirdráttarvextir einstaklinga og fyrirtækja hækka um 0,75 prósentustig.

Breytingar á lánum sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka þó gildi í samræmi við skilmála þeirra og tilkynningar þar að lútandi.