Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Breytingar á vöxtum Íslandsbanka

Íslandsbanki mun 1. júlí breyta vöxtum í kjölfar vaxtaákvörðunar Seðlabanka Íslands þann 22. júní þar sem stýrivextir voru hækkaðir um eitt prósentustig.


Vaxtabreytingar útlána taka mið af fjármögnunarkostnaði bankans hverju sinni sem fylgir að hluta stýrivöxtum Seðlabankans. Aðrar fjármögnunarleiðir hafa einnig umtalsverð áhrif á verðlagningu bankans, en markaðsvextir á skuldabréfamörkuðum hafa hækkað verulega á liðnum vikum.  

Vaxtabreytingarnar eru eftirfarandi:

  • Breytilegir vextir óverðtryggðra húsnæðislána hækka um 1,0 prósentustig. Fastir vextir óverðtryggðra húsnæðislána til 3 ára hækka um 0,3 prósentustig. Fastir vextir óverðtryggðra húsnæðislána til 5 ára hækka um 0,55 prósentustig.
  • Breytilegir vextir verðtryggðra húsnæðislána hækka um 0,85 prósentustig. Fastir vextir verðtryggðra lána til fimm ára hækka um 0,4 prósentustig.
  • Vextir á óverðtryggðum innlánsreikningum hækka um allt að 1,0 prósentustig. Vextir almennra veltureikninga hækka um 0,3 prósentustig.
  • Breytilegir óverðtryggðir kjörvextir hækka um 1,0 prósentustig.
  • Breytilegir verðtryggðir kjörvextir hækka um 0,60 prósentustig.
  • Breytilegir óverðtryggðir kjörvextir Ergo og vextir bílalána og bílasamninga hækka um 1,0 prósentustig.
  • Yfirdráttarvextir einstaklinga og fyrirtækja hækka um 1,0 prósentustig.

Breytingar á lánum sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka þó gildi í samræmi við skilmála þeirra og tilkynningar þar að lútandi.