Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Breytingar á vöxtum Íslandsbanka

Breytingarnar taka gildi þann 7. september


Íslandsbanki mun þann 7. september breyta vöxtum í framhaldi af vaxtaákvörðun Seðlabanka Íslands þann 25. ágúst.

Fastir vextir óverðtryggðra húsnæðislána haldast óbreyttir. 

Vaxtabreytingarnar eru eftirfarandi:

  • Breytilegir vextir óverðtryggðra húsnæðislána hækka um 0,15 prósentustig
  • Óverðtryggðir kjörvextir hækka um 0,20 prósentustig
  • Yfirdráttarvextir einstaklinga og fyrirtækja hækka um 0,25 prósentustig
  • Breytilegir óverðtryggðir kjörvextir Ergo og vextir bílalána og bílasamninga hækka um 0,20 prósentustig
  • Vextir sparnaðarreikninga hækka um 0,15-0,25 prósentustig

Breytingar á lánum sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka þó gildi í samræmi við tilkynningar þar að lútandi sem sendar verða viðskiptavinum og munu birtast í rafrænum skjölum í netbanka og í appi.