Breytingin mun nýtast almenningi, fyrirtækjum og stofnunum sem treysta á hraða og áreiðanlega afgreiðslu bankaviðskipta á kvöldin. Eftir 8. september munu greiðslur sem framkvæmdar eru fyrir miðnætti virka daga bókast samdægurs.
Markmið þessarar breytingar er að koma enn betur til móts við nútíma viðskiptahætti með því að hafa dagslok bankakerfa í samræmi við almanaksdaga og styðja þannig við sveigjanlegri opnunartíma og samfellda þjónustu.
Bankadagar verða áfram virkir dagar og færslur sem berast á frídögum munu áfram bókast næsta virka dag.
Við hvetjum viðskiptavini okkar til að kynna sér áhrif breytingarinnar á sín viðskipti og hafa samband við Íslandsbanka ef nánari upplýsinga er þörf.
Kær kveðja,
starfsfólk Íslandsbanka
