Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Breiðamýri - sveit í borg

Íslandsbanki auglýsir til sölu byggingarrétt þriggja íbúðarþyrpinga á besta stað á Álftanesi í Garðabæ. Óskað er eftir tilboðum fyrir klukkan 13:00 fimmtudaginn 5. mars 2020.


Breiðamýri er 10,9 ha. að stærð og er í eigu Garðabæjar og Íslandsbanka. Hámarks byggingarmagn svæðisins er 30.000 m² í allt að 252 íbúðareiningum í fjölbýlishúsum með möguleika á sérbýli að hluta.

Sveit í borg

Breiðamýri er hluti af nýdeiliskipulögðum uppbyggingarsvæðum á miðsvæði Álftaness. Við gerð deiliskipulagsins hefur verið hugað að góðum tengslum við umlykjandi náttúru m.a. með útsýni til fjallahringsins, hafsins og Bessastaða. Aðgengi að nálægri samfélagsþjónustu eins og skóla og íþróttasvæðum er mjög gott um græn opin svæði sem teygja sig inn í byggðina. Frekari upplýsingar um deiliskipulag og uppbyggingu svæðisins má nálgast á vef Garðabæjar.

Áhugasamir tilboðsgjafar geta nálgast sölugögn hér að neðan. Kauptilboðum skal skila í lokuðu umslagi til móttöku Íslandsbanka (9. hæð), Hagasmára 3, 201 Kópavogi innan tilboðsfrests.

Óskað er eftir tilboðum fyrir klukkan 13:00 fimmtudaginn 5. mars 2020.

Tilboð verða opnuð kl. 13:30 sama dag á skrifstofu Íslandsbanka, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Nánari upplýsingar má nálgast í gegnum netfangið breidamyri@islandsbanki.is