Biðlisti í Tæknikaffi Íslandsbanka – viðbótarnámskeið í undirbúningi

Viðtökur við Tæknikaffi Íslandsbanka hafa verið frábærar. Öll sæti fylltust á mettíma þegar opnað var fyrir skráningu og hefur fjöldi viðskiptavina skráð sig á biðlista.


Viðtökur við Tæknikaffi Íslandsbanka hafa verið frábærar. Öll sæti fylltust á mettíma þegar opnað var fyrir skráningu og hefur fjöldi viðskiptavina skráð sig á biðlista.

Tæknikaffi er hluti af fræðsluátaki Íslandsbanka um stafræna þjónustu bankans. Þar kynnum við nýja möguleika í appinu og netbankanum, svörum spurningum og bjóðum upp á persónulega leiðsögn fyrir alla sem vilja fá sem mest út úr stafrænum lausnum bankans. 

Við þökkum viðskiptavinum sýndan áhuga. Unnið er að því að bæta við fleiri námskeiðum á næstu vikum til að tryggja að sem flestir áhugasamir komist að. Nánari upplýsingar verða birtar á vefsíðu bankans þegar þær liggja fyrir.