Skýrsl­ur árs­ins 2025

Íslandsbanki gefur út samþætta árs- og sjálfbærniskýrslu. Bankinn birtir einnig aðrar skýrslur með viðbótarefni sem ætlað er að veita hagsmunaaðilum frekari upplýsingar um tiltekið efni eins og áhættustýringu, fjárhag bankans og vinnu bankans tengda sjálfbærni.


Saman gefa þessar skýrslur heildstæða og ítarlega mynd af starfsemi bankans árið 2025, ásamt helstu áherslum. Skýrslurnar eru unnar í samræmi við alþjóðlegar reglur og staðla á borð við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS), UFS leiðbeiningar Nasdaq, PCAF aðferðafræðina (e. Partnership for Carbon Accounting Financials), TCFD viðmið (e. Task Force on Climate-Related Financial Disclosures auk íslenskra laga og reglugerða Evrópusambandsins. Bankinn leggur áherslu á aukið flæði gagnsærra upplýsinga um sjálfbærni. Endurskoðunarfyrirtækið KPMG ehf. fór yfir valda sjálfbærniupplýsingargjöf og staðfesti hana með takmarkaðri vissu.

Eignarhald sem byggir alfarið á markaðsforsendum eykur gagnsæi, styður við öfluga stjórnarhætti og skapar skýrari grunn fyrir verðmætasköpun til lengri tíma.

Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka

Helstu tölur 2025

  • Arðsemi (ROE) - 11,2%

  • Kostnaðarhlutfall - 42,4%

  • Eiginfjárhlutfall þáttar 1 - 20,1%

  • Eiginfjárhlutfall - 24,0%

  • Lausafjárþekjuhlutfall - 203%

  • Fjármögnunarhlutfall - 127%

  • Vogunarhlutfall - 12,5%

  • Heildareignir - 1.728 ma. kr.

Regluleg samskipti og skýr framsetning á stefnumarkandi áherslum hjálpa til við að tryggja að hagsmunaaðilar hafi innsýn í störf stjórnar og þann ramma sem hún byggir ákvarðanatöku sína á.

Heiðar Guðjónsson, stjórnarformaður Íslandsbanka