Afkoma á fyrsta ársfjórðungi 2026

Hagnaður af rekstri nam 7,5 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi 2026. Arðsemi eigin fjár á fyrsta ársfjórðungi var 13,6% á ársgrundvelli.


Helstu atriði í fjárhagslegri afkomu fyrsta ársfjórðungs 2026 (1F26)

  • Hagnaður af rekstri nam 7,5 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi 2026 (1F25: 5,2 milljarðar króna). Arðsemi eigin fjár á fyrsta ársfjórðungi var 13,6% á ársgrundvelli (1F25: 9,4%).
  • Hreinar vaxtatekjur námu 17,1 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi 2026 og hækkuðu um 4,2 milljarða króna á 1F26 samanborið við 1F25.
  • Vaxtamunur var 3,9% á fyrsta ársfjórðungi 2026, samanborið við 3,2% á 1F25. 
  • Hreinar þóknanatekjur á fyrsta ársfjórðungi 2026 voru 3,3 milljarðar króna, sem er aukning um 6,6% samanborið við 1F25.
  • Hrein fjármagnsgjöld voru 213 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi 2026, samanborið við fjármagnsgjöld að fjárhæð 986 milljónir króna á 1F25.
  • Stjórnunarkostnaður nam 7,8 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi 2026, en nam 7,4 milljörðum króna á 1F25.
  • Kostnaðarhlutfall bankans var 38,5% á fyrsta ársfjórðungi 2026, samanborið við kostnaðarhlutfallið 47,6% á 1F25.
  • Virðisrýrnun fjáreigna jókst og var neikvæð um 1.219 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi 2026 samanborið við virðisrýrnun sem nam 3 milljónum króna á 1F25. Áhættukostnaður útlána (e. cost of risk) var 35 punktar á ársgrundvelli á fyrsta ársfjórðungi 2026 samanborið við 0 punkta á 1F25.
  • Útlán til viðskiptavina jukust um 34,1 milljarð króna á fyrsta ársfjórðungi 2026 frá fjórða ársfjórðungi 2025 og voru 1.401 milljarð króna í lok fyrsta ársfjórðungs 2026.
  • Innlán frá viðskiptavinum jukust um 4,6% á fyrsta fjórðungi 2026 og námu 1.013 milljörðum króna í lok 1F26.
  • Eigið fé nam 212,7 milljörðum króna í lok fyrsta ársfjórðungs 2026, samanborið við 225,4 milljarða króna í lok árs 2025.
  • Eiginfjárhlutfall var 22,5% í lok fyrsta ársfjórðungs 2026, að meðtöldum hagnaði á 1F26, samanborið við 24,0% í lok árs 2025. Samsvarandi eiginfjárhlutfall almenns þáttar 1 (CET1) var 18,6%  í lok fyrsta ársfjórðungs 2026 að meðtöldum hagnaði á 1F26, samanborið við 20,1% í lok árs 2025. Eiginfjárhlutfall almenns þáttar 1 var 363 punktum yfir kröfum eftirlitsaðila í lok fyrsta ársfjórðungs 2026, og hærra en fjárhagslegt markmið bankans sem er að vera með 100-300 punkta eiginfjár svigrúm umfram kröfur eftirlitsaðila.
  • Heildarútgreiðslugeta nemur 29,2 milljörðum króna og tekur mið af hagnaði fyrsta ársfjórðungs 2026 auk ólokinna endurkaupa á birtingardegi.
  • Lágmarkskrafa um eiginfjárgrunn og hæfar skuldbindingar (MREL) er 18,8% af áhættugrunni, til viðbótar við samanlagða kröfu um eiginfjárauka. Lágmarkskrafa um eiginfjárgrunn og hæfar skuldbindingar (e. MREL) bankans sem % af áhættuvegnum eignum var 28,5% að meðtöldum samanlögðum varúðarauka samstæðunnar þann 31. mars 2026. Í lok fyrsta fjórðungs 2026 var MREL hlutfall bankans 40,3%.

 

Hagnaður af rekstri Íslandsbanka nam 7,5 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi og arðsemi eigin fjár á ársgrundvelli var 13,6%, sem er í báðum tilvikum yfir spám greinenda fyrir fjórðunginn. Aukning í vaxtatekjum, sem voru rúmum 11% yfir spám greinenda, skýrir að stórum hluta aukinn hagnað samanborið við fyrsta ársfjórðung síðasta árs. Afkoma af kjarnarekstri sýnir að undirstöðurnar í rekstri bankans eru sterkar. Óvissa í alþjóðlegu umhverfi og sveiflur á mörkuðum erlendis og minni umsvif á markaði hér á landi höfðu áhrif á þóknanatekjur á fjórðungnum, sem þó voru hærri en á fyrsta ársfjórðungi árið 2025.

Afkoma Íslandsbanka endurspeglar traustan rekstur bankans þrátt fyrir krefjandi ytra umhverfi. Ný vildarþjónusta Íslandsbanka hefur slegið í gegn og skráðu 38 þúsund viðskiptavinir sig í þjónustuna á fyrstu þremur vikum hennar. Góð viðbrögð viðskiptavina staðfesta að einfaldari, persónulegri og gagnsæ þjónusta skiptir máli og við höldum áfram að þróa þjónustuna með það fyrir augum að gera hana enn betri. Staða Íslandsbanka á markaði fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki hefur verið afar sterk og nýverið hófum við að bjóða upp á færsluhirðingu sem hluta vöruframboðs okkar og bætum því enn frekar við þjónustu okkar á þeim markaði.

Áhrifa óvissu í alþjóðlegu umhverfi hefur orðið vart hér á landi líkt og víða annars staðar. Verðbólga hefur verið þrálát og samkvæmt spá greiningar Íslandsbanka er ekki gert ráð fyrir því að stýrivextir lækki fyrr en í fyrsta lagi í lok árs. Við erum í nánu sambandi við okkar viðskiptavini og fylgjumst með áhrifum ytra umhverfis á umsvif og eignagæði.

Með stofnun þróunarfélags um nýtingu gervigreindar tókum við eitt skrefið enn að því markmiði að innleiða gervigreind á enn markvissari hátt inn í daglegan rekstur bankans. Ætlunin er að þróa í félaginu nýjar hugbúnaðarlausnir á kvikan og skapandi hátt og verður áhugavert að fylgjast með þeim anga starfseminnar ná flugi. Innan bankans verður áfram lögð áhersla á að valdefla starfsfólk, þjálfa og kenna því að nýta gervigreindina í störfum þess. Skipulagsbreytingarnar sem komu til framkvæmda nýverið eru liður í því að auka skilvirkni, stytta boðleiðir og einfalda ákvarðanatöku innan bankans. Íslandsbanki hefur unnið markvisst að því að greina áhrif nýjustu tæknibreytinga á starfsemi bankans og ætlar sér að vera leiðandi í því að nýta nýja tækni og efla með henni enn frekar þjónustu okkar við viðskiptavini. Breytingarnar voru liður í því að gera bankann betur í stakk búinn til að móta framtíð bankaþjónustu.

Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka

Fjárfestaefni

Allt fjárfestaefni verður birt á vefsvæði fjárfestatengsla þar sem ítarlegri upplýsingar um fjárhagsdagatal og þögul tímabil eru einnig aðgengilegar.

Fyrirvari

Fréttatilkynning þessi gæti vísað til spár um framtíðarhorfur sem er háð áhættu- og óvissuþáttum og getur þýtt að raunverulegur árangur verði umtalsvert frábrugðinn því sem spáð er í þessari fréttatilkynningu. Íslandsbanki hf. hefur ekki skyldu til að, og mun ekki, uppfæra þessar spár um framtíðarhorfur félagsins til að endurspegla atburði og aðstæður sem eiga sér stað eftir útgáfu þessarar fréttatilkynningar. Það er á ábyrgð fjárfestis að reiða sig ekki á spár um framtíðarhorfur sem eru settar fram í þessari fréttatilkynningu þar sem þær eiga eingöngu við á þeim tíma sem hún er gefin út. Spár um framtíðarhorfur gefa ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur og eru allar yfirlýsingar um framtíðarhorfur félagsins fullgildar í heild sinni með tilliti til þessa fyrirvara.