Helstu atriði í fjárhagslegri afkomu fjórða ársfjórðungs 2025 (4F25)
- Hagnaður af rekstri nam 5,9 milljörðum króna á fjórða ársfjórðungi 2025 (4F24: 6,3 milljarðar króna). Arðsemi eigin fjár var 10,5% á ársgrundvelli (4F24: 11,2%).
- Hreinar vaxtatekjur námu 12,4 milljörðum króna á fjórða ársfjórðungi 2025 og hækkuðu um 1.516 milljónir króna á 4F25 samanborið við 4F24.
- Vaxtamunur var 2,9% á fjórða ársfjórðungi 2025, samanborið við 2,7% á 4F24.
- Hreinar þóknanatekjur á fjórða ársfjórðungi 2025 voru 4,2 milljarðar króna 2025, sem er aukning um 16% samanborið við 4F25.
- Hreinar fjármagnstekjur voru 404 milljónir króna á fjórða ársfjórðungi 2025, samanborið við fjármagnstekjur að fjárhæð 169 milljónir króna á 4F24.
- Aðrar rekstrartekjur námu 447 milljónum króna á fjórða ársfjórðungi 2025, samanborið við 777 milljónir króna á 4F24.
- Stjórnunarkostnaður nam 8,3 milljörðum króna á fjórða ársfjórðungi 2025, en nam 7,1 milljarði króna á 4F24.
- Kostnaðarhlutfall bankans var 43,5 % á fjórða ársfjórðungi 2025 og undanskilur launakostnað að fjárhæð 804 milljónir króna vegna snemmbúinna starfsloka og tekjur að fjárhæð 237 milljónir króna innan hreinna vaxtatekna (550 milljónir króna vegna bakfærslu á skuldbindingu sem var gjaldfærð í 3F25 vegna lögfræðilegra mála og gjaldfærslu að fjárhæð 313 milljónir króna vegna leiðréttingar frá fyrri árum). Kostnaðarhlutfallið var 45,7% á 4F24.
- Virðisrýrnun fjáreigna neikvæð um 1.087 milljónir króna á fjórða ársfjórðungi 2025 samanborið við jákvæða virðisbreytingu sem nam 352 milljónum króna á 4F24. Áhættukostnaður útlána (e. Cost of risk) var 32 punktar á ársgrundvelli á fjórða ársfjórðungi 2025 samanborið við -11 punkta á 4F24.
- Útlán til viðskiptavina jukust um 33,9 milljarða króna á fjórða ársfjórðungi 2025 frá þriðja ársfjórðungi 2025 og voru 1.367 milljarðar króna í lok fjórða ársfjórðungs 2025.
- Innlán frá viðskiptavinum drógust saman um 4,0% milli loka þriðja og fjórða ársfjórðungs 2025 og námu 969 milljörðum króna í lok 4F25.
- Eigið fé nam 225,4 milljörðum króna í lok fjórða ársfjórðungs 2025, samanborið við 227,4 milljarða króna í lok árs 2024.
- Eiginfjárhlutfall var 24,0% í lok árs 2025, samanborið við 23,2% í lok árs 2024. Samsvarandi eiginfjárhlutfall almenns þáttar 1 (CET1) var 20,1% í lok árs 2025, hið sama og við árslok 2024. Eiginfjárhlutfall almenns þáttar 1 var 510 punktum yfir kröfum eftirlitsaðila í lok þriðja ársfjórðungs 2025, og hærra en fjárhagslegt markmið bankans sem er að vera með 100-300 punkta eiginfjár svigrúm umfram kröfur eftirlitsaðila.
- Lágmarkskrafa um eiginfjárgrunn og hæfar skuldbindingar (MREL) er 18,8% af áhættugrunni, til viðbótar við samanlagða kröfu um eiginfjárauka. Í lok fjórða ársfjórðungs 2025 var MREL hlutfall bankans 44,0%, 1.550 punktum yfir kröfum eftirlitsaðila.
Helstu atriði í fjárhagslegri afkomu Íslandsbanka árið 2025
- Hagnaður af rekstri bankans árið 2025 nam 25,2 milljörðum króna (2024: 24,2 milljarðar króna). Arðsemi eigin fjár var 11,2% (2024: 10,9%).
- Hreinar vaxtatekjur á árinu námu 52,5 milljörðum króna, sem er aukning um 11,0% frá árinu 2024.
- Hreinar þóknanatekjur námu 14,1 milljarði króna á árinu og jukust um 7,4% frá árinu 2024, þegar þær voru 13,1 milljarður króna.
- Hrein fjármagnsgjöld voru 922 milljónir króna á árinu 2025, samanborið við fjármagnsgjöld að fjárhæð 338 milljónir króna árið 2024.
- Stjórnunarkostnaður var 29,5 milljarður króna á árinu 2025, en 27,6 milljarður á árinu 2024, þegar frá er talin 470 milljón króna stjórnvaldssekt sem gjaldfærð var á öðrum ársfjórðungi 2024.
- Kostnaðarhlutfall bankans lækkaði úr 43,8% árið 2024 niður í 42,4% árið 2025. Kostnaðarhlutfall fyrir árið 2025 undanskilur launakostnað að fjárhæð 804 milljónir króna vegna snemmbúinna starfsloka og gjaldfærslu að fjárhæð 313 milljónir króna innan hreinna vaxtatekna vegna leiðréttingar frá fyrri árum. Kostnaðarhlutfallið fyrir árið 2024 undanskilur gjaldfærslu stjórnvaldssektar að fjárhæð 470 milljónir króna sem gjaldfærð var á 2F24.
- Virðisrýrnun á fjáreignum á árinu 2024 nam 681 milljón króna á árinu 2025 samanborið við jákvæða virðisbreytingu sem nam 645 milljónum króna árið 2024.
Bestun efnahagsreiknings, arðgreiðslur og útgreiðsla á umfram eigin fé
- Áform um bestun eiginfjársamsetningar bankans standa enn, að teknu tilliti til markaðsaðstæðna.
- Stjórn Íslandsbanka mun leggja til 12,6 milljarða króna arðgreiðslu við aðalfund bankans í mars. Það er í samræmi við arðgreiðslustefnu bankans um að greiða um 50% af hagnaði fyrra árs í arð til hluthafa.
- Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur veitt bankanum heimild fyrir endurkaupum á eigin hlutum fyrir allt að 15 milljarða króna að markaðsvirði. Bankinn mun tilkynna um tímasetningu og framkvæmd endurkaupa samkvæmt framangreindri heimild þegar ákvörðun um þau hefur verið tekin. Fjármálaeftirlitið hefur einnig veitt bankanum heimild til lækkunar hlutafjár sem nemur fjárhæð þeirra eigin hluta sem keyptir hafa verið á grundvelli eldri heimilda fjármálaeftirlitsins.
- Stjórn bankans mun óska eftir endurnýjaðri heimild til endurkaupa á eigin bréfum að því marki sem lög leyfa á aðalfundi bankans í mars 2026.
- CRR 3 var innleitt á Íslandi í desember 2025 og hafði það töluverð áhrif á áhættugrunn og eiginfjárhlutföll samstæðunnar. Innleiðing CRR 3 leiddi til 88 milljarða króna. (7,8%) lækkunar á áhættugrunni, sem er að mestu vegna lækkunar á útlánaáhættugrunninum. Lækkunin leiddi til hækkunar á eiginfjárhlutfalli almenns þáttar 1 úr 18,5% í 20,1%, eiginfjárhlutfall þáttar 1 hækkaði úr 20,0% í 21,7% og eiginfjárhlutfallið hækkaði úr 22,1% í 24,0%.
