Verð á mat og óáfengum drykkjum hækkaði um 0,4% í október samkvæmt mælingu Hagstofunnar og hefur hækkað um 3,9% síðustu tólf mánuði. Á sama tíma hafa verslanir boðað verðfrystingar og verðlækkanir og verð á mörgum vörum hefur sannarlega lækkað. Mörgum finnst þetta skjóta skökku við. Ef verslanir lækka verð, ætti matarliðurinn í vísitölunni þá ekki að lækka líka? Til að svara því þarf fyrst að skoða hvernig liðurinn er reiknaður.
Hvernig er matarverð mælt?
Vísitala neysluverðs (VNV) mælir hvað það kostar að kaupa sömu körfu af vörum og þjónustu frá einum mánuði til annars. Starfsfólk Hagstofunnar safnar verðum í um vikutíma um miðjan hvern mánuð, og í heild er safnað yfir 20.000 verðum á um 4.000 vörum og þjónustuliðum. Matarkarfan er hluti af þessari heild og þar er verð mælt mánaðarlega á vörum í skilgreindum vöruflokkum, en ekki er gefið upp nákvæmlega hvaða vörur eru mældar.
Hver vara fær vægi eftir því hve stór hluti hún er af útgjöldum heimilanna. Vægið byggir á útgjaldarannsókn Hagstofunnar og er grunnur þess endurnýjaður einu sinni á ári. Matur og óáfengir drykkir vega 15,3% af vísitölunni nú og eru þriðji stærsti flokkurinn á eftir húsnæði og flutningum, eins og sést á myndinni hér að neðan. Innan matarliðarins vega mjólkurvörur, kornvörur og kjöt þungt, en aðrir vöruflokkar mun minna.

