Athugið

Þessi grein er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Af hverju að gera rekstraráætlun?

Eitt það mikilvægasta sem ég hef lært í mínum störfum gegnum tíðina er gildi þess að gera góða og raunhæfa áætlun áður en ráðist er í verkefni, stór eða smá.


Allir sem vilja ná markmiðum sínum í fjármálum ættu að gera einhvers konar áætlun til framtíðar. Hvort sem um er að ræða heimilisbókhaldið, einföld markmið í sparnaði, frumkvöðul með nýja viðskiptahugmynd eða stórfyrirtæki sem vilja geta haft sem besta mynd af sínum rekstri, þá er alltaf gulls ígildi að undirbúa sig vel. Í upphafi skyldi endinn skoða.

Rekstraráætlun fyrirtækja

Í fyrirtækjarekstri eru rekstraráætlanir mikilvægar fyrir stjórnendur fyrirtækja svo þeir geti betur lagt niður fyrir sig helstu forsendur rekstrarins og varpað ljósi á þær áskoranir sem framundan eru. Í áætluninni eru tekjur taldar saman og sá kostnaður sem fellur til á móti. Rekstraráætlun er mikilvægt tæki fyrir eigendur fyrirtækja til að taka ákvarðanir í rekstri sínum, en einnig til að kynna viðskiptahugmynd, eða jafnvel fyrirtækið sjálft, fyrir fjárfestum, lánveitendum eða öðrum sem gætu mögulega viljað taka þátt í verkefninu á einhvern hátt.

Hvað ber að varast?

Til þess að áætlun sé gagnleg er mikilvægt að hafa fæturna kyrfilega á jörðinni við gerð hennar. Algengasti vandinn er ákveðin almenn tilhneiging til að knýja fram niðurstöðu sem staðfestir þá útkomu sem vonast er eftir. Við gerð áætlunar getur líka verið erfitt að áætla tekjur inn í framtíðina þar sem þær ráðast oft af ófyrirsjáanlegri eftirspurn fólks og fyrirtækja. Til að meta tekjur er hægt að nýta upplýsingar um tekjur í fortíð til að áætla þær inn í framtíðina en samhliða því er mikilvægt að gæta hófs í að áætla vöxt.

Tækifæri og áhættur

Að mínu mati er hins vegar farsælast að einbeita sér að kostnaðarhliðinni fyrst. Kostnaður sem fellur til í hverjum mánuði óháð sölu er svokallaður fastur kostnaður. Breytilegur kostnaður er svo sá kostnaður sem breytist eftir því hversu mikil umsvif fyrirtækisins eru hverju sinni. Við áætlunargerð er gott að velta upp þeim möguleikum sem eru til staðar til að hagræða og lækka kostnað.

Þegar rekstraráætlun liggur fyrir er hægt að vinna með hana á ýmsa vegu til að fá fram mismunandi sviðsmyndir svo auðveldara sé að haga seglum eftir vindi. Þannig er vel unnin áætlun mikilvægt tæki til að vega og meta bæði tækifæri og áhættur, og lykillinn að góðum og farsælum rekstri.

Greinin birtist fyrst á Vísi.

Höfundur


Karl Sólnes Jónsson

Viðskiptastjóri fyrirtækja