Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Að­al­fund­ur Íslandsbanka

Aðalfundur Íslandsbanka verður haldinn fimmtudaginn 19. mars 2020 kl. 15:00 í höfuðstöðvum bankans, Norðurturni, Hagasmára 3, 201 Kópavogi.


Dagskrá aðalfundar

  1. Setning fundar
  2. Skýrsla stjórnar um starfsemi bankans 2019
  3. Staðfesting ársreiknings fyrir árið 2019
  4. Ákvörðun um greiðslu arðs og ráðstöfun hagnaðar bankans á árinu 2019
  5. Kosning stjórnar- og varamanna
  6. Kosning endurskoðunarfélags
  7. Ákvörðun um þóknun til stjórnar fyrir næsta kjörtímabil
  8. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu
  9. Önnur mál

Fundurinn sem og fundargögn verða á íslensku.

Íslandsbanki er í eigu íslenska ríkisins. Bankasýsla ríkisins fer með stjórn eignarhlutans. Tillaga um kosningu til stjórnar bankans bíður tillögu Bankasýslu ríkisins þar að lútandi í samræmi við 7. gr. laga um Bankasýslu ríkisins nr. 88/2009.

Nánari upplýsingar:


Margrét Lilja Hrafnkelsdóttir

Fjárfestatengsl


Senda póst