Að kaupa heysátuna frekar en að leita að nálinni

Aðferðafræði Bogle fólst í því að bjóða fjárfestum aðra leið, að fjárfesta í vísitölusjóðum sem fylgja markaðnum í stað þess að reyna að vinna hann og það með sem lægstum tilkostnaði.


Á tímum þar sem fjárfestingarheimurinn einkennist af hraðri þróun, aukinni sjálfvirkni og sífellt fjölbreyttari valkostum skiptir meira máli en nokkru sinni fyrr að fjárfestar hafi aðgang að traustum og gagnsæjum lausnum. Vanguard, eitt stærsta eignastýringarfyrirtæki heims, hefur í hálfa öld boðið upp á slíkar lausnir sem byggja á einfaldleika og hagkvæmni með hagsmuni viðskiptavina að leiðarljósi.

Viðskiptavinir eru eigendur Vanguard

Félagið, sem fagnaði 50 ára afmæli á síðasta ári, hefur frá upphafi haft skýra sýn, að gera langtímafjárfestingu aðgengilega fyrir alla. Vanguard var stofnað af John C. Bogle, sem er talinn einn áhrifamesti frumkvöðull fjármálasögunnar vegna áherslu sinnar á kosti vísitölusjóða. Bogle hafði skýra sýn á hlutverk vísitölusjóða; þeir áttu að vera traustur farvegur fyrir sparnað og langtímaávöxtun. Vanguard hefur á síðustu 50 árum náð aðdáunarverðum árangri með því að leggja áherslu á þessa aðferðafræði. Vanguard stýrir nú tæplega 12.000 milljörðum Bandaríkjadollara fyrir viðskiptavini sína um allan heim og býður upp á fjölbreytt úrval sjóða sem fylgja markaðnum í heild sinni, í stað þess að reyna að vinna hann.

Bogle lagði mikla áherslu á að hlutverk rekstraraðila verðbréfasjóða væri að þjóna fjárfestum, bæði almenningi og fagfjárfestum, á hagkvæman, skilvirkan og heiðarlegan hátt. Hann hélt því fram að vöxtur verðbréfasjóðamarkaðarins yrði hámarkaður með lækkun upphafskostnaðar og umsjónarlauna verðbréfasjóða. Eignarhald Vanguard er frábrugðið flestum fjármálafyrirtækjum sem reka hluta- og skuldabréfasjóði. Eigendur Vanguard eru sjálfir viðskiptavinir sem hafa fjárfest í sjóðum Vanguard . Hugmynd Bogle var að viðskiptavinirnir væru einu eigendur verðbréfasjóðanna og að sjóðirnir væru reknir með hagsmuni þeirra í fyrirrúmi. Í stað þess að félagið greiði arð til eigenda er markmiðið að lækka kostnað við rekstur sjóðanna.

Fá félög skila stærsta hlutanum af ávöxtun

Það getur verið erfitt og kostnaðarsamt að velja og tímasetja kaup á stökum hlutabréfum. Einnig getur verið dýrt að kaupa og selja þau reglulega. Hendrik Bessembinder, prófessor við fylkis háskólann í Arizona, hefur rannsakað ávöxtun hlutabréfa á stærstu hlutabréfamörkuðum í heimi síðustu áratugi. Niðurstaða Bessembinder var að minnihluti skráðra hlutabréfa skilar hæstu ávöxtun og að verulegur hluti skilar lægri ávöxtun en ríkisskuldabréf. Því er afar vandasamt að ætla að hitta á réttu hlutabréfin á hverjum tíma.

Aðferðafræði Bogle fólst í því að bjóða fjárfestum aðra leið, að fjárfesta í vísitölusjóðum sem fylgja markaðnum í stað þess að reyna að vinna hann og það með sem lægstum tilkostnaði. Hugmyndafræðin að baki þessari áherslu Vanguard kristallast vel í ummælum sem Bogle lét hafa eftir sér: „Ekki leita að nálinni í heysátunni. Kauptu bara heysátuna.“

Leiðandi í lækkun kostnaðar

Einfaldleiki og lág umsjónarþóknun eru meðal helstu kosta vísitölusjóða og hafa jafnframt verið lykillinn að árangri Vanguard. Á sama tíma gefa þeir sparifjáreigendum tækifæri til að ávaxta í takt við markaðinn í heild sinni. Þannig verður hlutabréfafjárfesting aðgengileg þeim sem vilja ná slíkri ávöxtun án þess að hafa endilega skoðun eða þekkingu á einstaka hlutabréfum.  Vísitölusjóðir eru þannig ódýrari kostur en virk stýring, en sú síðarnefnda getur þó hentað þeim sem vilja sérhæfðara eignasafn, einblína á ákveðna eignaflokka eða freista þess að ná umframávöxtun.

Meðalkostnaður í hlutabréfasjóðum Vanguard í Bandaríkjunum hefur lækkað úr 60 punktum (0,6%) í 7 punkta (0,07%) frá árinu 1982. Á sama tíma nemur kostnaður annarra verðbréfasjóða í Bandaríkjunum um 44 punktum (0,44%), eða um sexföldum kostnaði Vanguard.

Í því felst kjarninn í arfleifð Bogle og þeirri hugmyndafræði sem Vanguard hefur byggt á í hálfa öld. Fjárfestar þurfa ekki endilega að finna réttu hlutabréfin á hverjum tíma til að ná góðum árangri til lengri tíma. Með því að dreifa áhættunni, halda kostnaði í lágmarki og fylgja markaðnum geta þeir þess í stað átt hlutdeild í þeim félögum sem knýja ávöxtun hans áfram. Með öðrum orðum: í stað þess að leita að nálinni getur verið skynsamlegra að eiga heysátuna.

Íslandsbanki hefur átt í farsælu samstarfi við Vanguard frá því fyrir aldamót og var fyrsti samstarfsaðili félagsins utan Bandaríkjanna. Í gegnum árin hefur bankinn boðið íslenskum fjárfestum aðgang að fjölbreyttum Vanguard sjóðum, þar á meðal hlutabréfasjóðum sem fylgja S&P 500 og MSCI World vísitölunum. Einnig er Vanguard með fjölbreytt úrval af skuldabréfasjóðum. Með samstarfi við Vanguard hefur bankinn tryggt að íslenskir fjárfestar hafi aðgang að góðum lausnum á sviði langtímafjárfestinga – lausnum sem byggja á fræðilegum grunni, hagkvæmni og hagsmunum viðskiptavina. 

Greinin birtist í Viðskiptablaðinu 23. september 2026.

Höfundur


Haraldur Gunnarsson

Viðskiptastjóri í Eignastýringu Íslandsbanka


Fyrirvari vegna fræðsluefnis
Tekið skal fram að umfjöllun þessi er aðeins birt í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á hana sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum eða þjónustu. Íslandsbanki hf. ber enga ábyrgð á viðskiptum sem kunna að vera gerð á grundvelli þeirra upplýsinga sem fram koma á vefsíðu þessari. Íslandsbanki hf. ábyrgist ekki nákvæmni, áreiðanleika né réttmæti upplýsinga sem upprunnar eru frá þriðja aðila.