155 milljónir í hlaupastyrk

Íslandsbanki þakkar þeim sem hlupu, þeim sem hvöttu og þeim sem styrktu góð málefni.


Yfir 155 milljónir hafa safnast í hlaupastyrk til góðra málefna í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka sem fór fram síðustu helgi. Þetta er töluverð aukning frá fyrra ári þegar söfnuðust 118 milljónir.  Þátttakendur í hlaupinu voru um 14.000 og hafa aldrei eins margir tekið þátt í 10km og 3km hlaupi

Íslandsbanki er stoltur samstarfsaðili hlaupsins sem haldið er af Íþróttabandalagi Reykjavíkur nú í 35.sinn. Hlaupastyrkurinn rennur óskertur til góðgerðafélaganna sem eru 180 talsins. 

Hópur íslenskra leikara voru í forsvari fyrir Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka í ár en allir leikarar gáfu vinnu sína í þágu góðra málefna.

Íslandsbanki þakkar þeim sem hlupu, þeim sem hvöttu og þeim sem styrktu góð málefni!