Sölu fasteignasafns FÍ fasteignafélags að andvirði 13,1 milljarðs króna er nú lokið. Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hafði umsjón með söluferlinu sem er meðal stærri fasteignaviðskipta sem lokið hefur verið á íslenskum markaði á undanförnum misserum.
Með viðskiptunum eignast Kaldalón fjölbreytt eignasafn á höfuðborgarsvæðinu sem samanstendur meðal annars af hótel-, heilbrigðis- og skrifstofuhúsnæði. Jafnframt festi þýska ríkið kaup á sendiráðseigninni við Laufásveg.
FÍ eignarhaldsfélag, móðurfélag FÍ fasteignafélags, er í meirihlutaeigu innlendra lífeyrissjóða. Með viðskiptunum verða sjóðirnir meðal hluthafa Kaldalóns.
Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hafði umsjón með söluferlinu, í samstarfi við FÍ fasteignafélag, en lögfræðiráðgjöf var í höndum BBA legal.
