Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Islandsbanki hf.: Niðurstaða víxlaútboðs

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til sex og tólf mánaða.


Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til sex og tólf mánaða. Í heild bárust tilboð upp á 4.560 m.kr. og var tilboðum tekið fyrir 940 m.kr.

Seldir voru víxlar til 6 mánaða að nafnverði 340 m.kr. á 4,92% flötum vöxtum. Heildartilboð voru 2.860 m.kr. á bilinu 4,90% - 5,15%.

Seldir voru víxlar til 12 mánaða að nafnverði 600 m.kr. á 5,04% flötum vöxtum. Heildartilboð voru 1.700 m.kr. á bilinu 4,99% - 5,20%. 

Stefnt er á að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Iceland 13. júní.