
Hvað áttu að gera við fermingarpeninginn?
Við bjóðum öllum krökkum á fermingaraldri til okkar á skemmtilegan og fræðandi fund þar sem við spjöllum um peninga á einfaldan og skýran hátt. Hvað er sniðugt að gera við fermingarpeningana og hvernig getur maður byrjað að byggja upp sparnað fyrir framtíðina?
Á fundinum verður meðal annars farið yfir:
- Hvernig er best að byrja spara
- Hvað er sniðugt að gera við fermingarpeningana
- Hvernig er hægt að safna fyrir ferðalögum, íbúð eða öðrum markmiðum
- Einföld og góð ráð sem geta nýst í framtíðinni
Erindi flytja Jóhann Óskar Jóhannsson, sérfræðingur hjá Íslandssjóðum og Herdís Lilja Þórðardóttir, sérfræðingur í markaðs- og vefmálum hjá Íslandsbanka.
Fundurinn fer fram í útibúi Íslandsbanka í Norðurturni. Hamborgarabúllu Tómasar mætir á svæðið og grillar hamborgara á meðan fundinum stendur, auk þess verður nammibar og allir gestir fá gjafapoka að fundi loknum.
Forsjáraðilar barna eru velkomnir á fundinn.