Hvernig byrja ég að spara?
Hvernig byrja ég að spara á nýju ári og hvernig eigum við að snúa okkur með sparnaðinn. Á þessum fundi verður farið yfir nokkur góð ráð sem geta skilað góðum árangri í sparnaði. Meðal þess sem verður farið yfir á fundinum er:
- Hvernig fæ ég góða yfirsýn yfir fjármálin?
- Er hægt að finna sparnað í neyslunni?
- Hvaða sparnaðarkostir eru í boði?
Farið verður yfir helstu tegundir á sparnaði og sparnaðarkosti á borð við sparnaðarreikninga, sjóði og séreignarsparnað ásamt mikilvægi reglulegs sparnaðar.
Erindi flytja Denis Cardaklija, fræðslustjóri Íslandsbanka og Katrín Kristinsdóttir, sérfræðingur í sjóðastýringu hjá Íslandssjóðum.
Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum Íslandsbanka í Norðurturni. Boðið verður upp á léttar veitingar á meðan fundinum stendur.