
Fjármál í kjölfar andláts
Á fundinum verður farið yfir helstu atriði sem mikilvægt er að hafa í huga þegar kemur að meðferð dánarbúa – frá því að andlát ber að og þar til skiptum lýkur.
Meðal annars verður fjallað um:
- mismunandi tegundir dánarbúa
- framkvæmd skipta og ferlið frá upphafi til loka
- umboð, réttindi og ábyrgð erfingja
- reglur erfðaréttar um stöðu erfingja, erfðaskrár og fyrirframgreiddan arf
- helstu atriði varðandi skattskyldu dánarbúa
Fundurinn hentar öllum sem vilja öðlast betri yfirsýn yfir ferlið og réttarsvið erfðamála á einfaldan og gagnlegan hátt. Erindi flytur Ingibjörg Árnadóttir, lögmaður hjá Íslandsbanka. Fundurinn fer fram í útibúi Íslandsbanka í Norðurturni, 17. febrúar kl. 17:00 - 18:30.