Stjórnendastörf


Mannauðsstjóri
Íslandsbanki leitar að framsýnum og drífandi aðila í stöðu mannauðsstjóra.
Mannauðsstjóri leiðir stefnumótun og framkvæmd mannauðsmála Íslandsbanka og gegnir lykilhlutverki í að styðja við áframhaldandi þróun traustrar og framsækinnar fyrirtækjamenningar, mannauðsferla og starfsumhverfis. Mannauðsmál eru hluti af nýstofnuðu sviði Stefnumótunar og menningar og heyrir mannauðsstjóri undir framkvæmdastjóra sviðsins. Stofnun sviðsins endurspeglar áherslu á aukið samstarf stoðsviða bankans og markvissa mótun fyrirtækjamenningar. Í því samhengi gegnir mannauðsstjóri mikilvægu hlutverki í samvinnu þvert á bankann.

Sækja um hér

Yfirlögfræðingur
Íslandsbanki leitar að metnaðarfullum yfirlögfræðingi.
Yfirlögfræðingur fer fyrir lögfræðiþjónustu Íslandsbanka og ber ábyrgð á lögfræðilegum málefnum bankans ásamt því að gegna lykilhlutverki í að styðja við áframhaldandi þróun traustrar og nútímalegrar bankaþjónustu. Viðkomandi þarf að búa yfir hæfni til að leiða öfluga liðsheild, stuðla að góðum starfsanda og skapa vinnuumhverfi þar sem samvinna, framsækni og fagmennska fá að njóta sín. Jafnframt er mikilvægt að viðkomandi búi yfir sterkri samskiptafærni.
Sækja um hér