Icelandair og þín fríðindi
Korthafar okkar njóta ýmissa fríðinda bæði hér á landi og á ferðalögum erlendis. Kynntu þér þau fríðindi sem þú færð með Icelandair kortum, t.d. aðgang að Saga Lounge, flýtiinnritun og ýmis sértilboð.
Korthafar okkar njóta ýmissa fríðinda bæði hér á landi og á ferðalögum erlendis. Kynntu þér þau fríðindi sem þú færð með Icelandair kortum, t.d. aðgang að Saga Lounge, flýtiinnritun og ýmis sértilboð.
Þú getur notað Vildarpunkta Icelandair með margvíslegum hætti. Með punktum má greiða fyrir flug, pakkaferðir, gistingu, bílaleigubíl og upplifanir hjá Icelandair og Expedia, en á þessum síðum eru Vildarpunktar greiðsluvalmöguleiki.
Korthafar Premium og Business geta lagt í langtímabílastæði ISAVIA og fengið allt að 3.750 kr. endurgreiðslu sé bílastæðið bókað fyrir fram á síðu ISAVIA.
Vissir þú að korthafar Platinum Icelandair, Premium og Business eiga kost á forgangi við innritun þegar flogið er með áætlunarflugi Icelandair? Þú framvísar kortinu þínu við forgangsborðið og flýgur í gegn.
Ef þú ert með Platinum Icelandair, Premium eða Business kreditkort færðu frían aðgang að Saga Lounge. Í betri stofunni eru ljúffengar veitingar, þráðlaust net og þægilegir legubekkir.
Við mælum með snertilausum greiðslumáta á ferðalögum erlendis. Þú getur haft kreditkortið þitt í rafrænu veski í Apple Pay og Google Wallet. Það er þó áfram mikilvægt að hafa kreditkortið meðferðis á ferðalögum.